Hey, heppin ég!
Sá að það var verið að auglýsa legsteina á afslætti í Fréttablaðinu.
Auglýsingin sjálf - 9. febTILBOÐSDAGAR
30-50% afsláttur af völdum legsteinum á meðan birgðir endast.
MOSAIK
Hamarshöfða 4
110 Reykjavík
S: 587 1960 -
www.mosaik.isMaður ætti kannski að skella sér á að kaupa 1-3 stykki legsteina í kreppunni.
Maður veit jú aldrei hvenær maður deyr, já eða manns nánustu.
Þá er nú gott að getað sagst hafa sýnst smá fyrirhyggju og verslað legstein á spottprís. Mikið held ég að mamma yfði nú glöð ef ég mætti með nokkra legsteina á lager til að eiga við tækifæri, ha!
Bendi öllum á að nýta sér þessi kjarakaup. Vonum bara að birgðir séu ekki uppurnar.
Klukkan er 13:48 og Viktoría hefur sagt sitt.
Af því að ég hef ekkert að gera í skólanum, vinnunni, foreldrafélaginu, skíðafélaginu, bamintoninu, garðinum, heimilinu né með börnin og hundinn og allt hitt.... þá var ég að hugsa um að skrá mig á Skot- og veiðivopnanámskeið núna í nóvember.
Mig langar í byssuleyfi. Af hverju ætti ég ekki að blæða því á mig?
Þá get ég veitt mér löglega til matar svona þegar sultarólin herðir að.
Já og gengið stolt um með Remingtoninn á öxlinni eins og sannur kvennmaður, ha!
Djö...langar mig!
Klukkan er 16:51 og Viktoría hefur sagt sitt.
Skrítið að ég fái heimsóknir hér enn.
Úr því að svo er þá er rétt að ég pári hér niður nokkur orð um lífið og tilveruna.
Það sagði enginn að lífið væri auðvelt, nei nei. Stundum er það samt bara svo djeskoti erfitt. Finnst ykkur það ekki líka? Bakverkir og krabbamein eru nú stundum bara tiltölulega einfaldir hlutir miðað við annað.
Annars smíðar hver könguló sinn eiginn vef...og ef hann er eitthvað gallaður þá hlýtur það auðvitað að vera spinnaranum að kenna eða hvað?
Klukkan er 14:34 og Viktoría hefur sagt sitt.
Hmm.. enn er fólk að kíkja á þessa síðu
Nú er liðin vika síðan ég fór að blogga á
nýja blogginu - smellið hér. Samt er ég að fá á allt að 10 heimsóknir hér á dag ennþá. Skyldu heimsóknirnar stafa af því að fólk vill frekar að ég noti gamla bloggið eða þá að það er ekki búið að uppfæra linkinn sinn á nýju síðuna. Þessu velti ég fyrir mér....hmmm!
Allt gott að frétta annars. Er farin að safna kröftum fyrir jólavesenið... annars er mottóið mitt í ár...að vera hress og ekkert jólastress!
Jamison kom með þá tillögu að við héldum amerísk jól. Ég tók vel í það og sá fyrir mér stórar steikur, stóra pakka og Santa Claus koma í heimsókn. En þegar ég áttaði mig á því að hann meinti að við myndum halda jólin klukkan 7am á jóladag (25.des)... þá missti ég áhuga. Sé börnin mín ekki halda ró sinni þangað til 25. des og þar að auki að morgni til. En kannski væri gaman að prufa þetta...en samt, ég held ekki.
Hvað finnst ykkur?
Klukkan er 13:32 og Viktoría hefur sagt sitt.
Þessi vefsíða er búin að vera að stríða mér... liggur alltaf niðri.
Ætla ekki að hætta með þessa, en nota aðra líka á meðan þessi er svona leiðinleg.
www.123.is/kidlingur
Klukkan er 23:24 og Viktoría hefur sagt sitt.
ÉG ER ALVEG HÆTT AÐ KOMAST INN Á ÞESSA DJÖ VEFSÍÐU.
FER AÐ SKOÐA ÞAÐ AÐ FINNA NÝTT BLOGG!
Klukkan er 21:08 og Viktoría hefur sagt sitt.
Hver vill eiga rauðhærða vini???
MERKILEGAR STAÐREYNDIR UM RAUÐHERÐA
- gen í 16 litning sem heitir MC1R ber ábyrgð á rauðum háralit og er í raun genagalli
- Aðeins 4% Evrópubúa eru rauðhærðir
- Rauðhærðir eru hrekkjóttari en aðrir
- Rauðhærðir þurfa 2-3 sinnum sterkari deyfingu og svæfingarlyf en aðrir og vakna oftar upp í miðjum aðgerðum en aðrir
- Rauðhærðir verða síður gráhærðir, heldur ljósherðir og svo hvíthærðir
- Eitthvað óútskýranlegt í fari rauðhærðra eykur hjartslátt nálægra einstaklinga
- Rússland þýðir "land rauðhærðra" til heiðurs Rúrik víkings sem var rauðhærður
- Í Biblíunni er Evu hans Adam lýst sem rauðhærðri
- Hafmeyjur eru of með fagur-rautt hár niður að mitti
- Rauðhærðar konur voru líklegari en aðrar til að verða dæmdar nornir og brenndar á báli
- hægt er að útiloka eða sanna að morðingi hafi verið rauðhærður ef hann skilur eftir sig DNA með MC1R geninu
- einstöku sinnum fæðast rauðhærðir svertingjar í Afríku og trúa menn þar í landi að það gerist þegar mök eru hafðar við konur á tíðum (á túr)
- rauðhærð börn voru oftar dæmd eða álitin óskilgetin þar sem háraliturinn fannst ekki í fjölskyldunni
- genið sem veldur rauðum háralit getur legið í dvala í 8 kynslóðir
- býflugur stinga rauðhærða frekar en aðra
- Í grískum miðaldasögum er sagt að rauðhærðir breytast í vampírur þegar þeir deyja
he he he...skemmtilegt og útskýrir ýmislegt!
Klukkan er 21:05 og Viktoría hefur sagt sitt.
JJ átti pantað viðtal hjá bak-sérfræðingi í Stykkishólmi, í þeirri veiku von að komast að í meðferð hjá honum fyrir jól eða þá fljótlega eftir. *mjög gott mál*
Nei nei, karlinn var lagður inn samstundis í 4 VIKUR... og þar með vorum við í djúpum skít: Við höfðum ekki gert ráð fyrir bráðainnlögn. JJ var allslaus... ekki einu sinni með tannburstan sinn eða astmalyfin sín. Nema jú hann var með bílinn MINN og ÖLL kortin mín (bæði debet- og kreditkort). Þar með er ég bíllaus og kortalaus... já og karlmannslaus. *tár*
Þannig að ég hentist út úr vinnunni til að koma helstu nauðsynjum á vörubíl til Rvk. Þurfti að keyra á eftir vörubílnum (sem ég hafði misst af) eins og vitleysingur og á sumardekkjum í þokkabót. Þegar ég náði honum og búin að blikka hann þangað til að ég fékk hann til að stoppa... þá gat ég ekki stoppað í hálkunni og var rétt búin að keyra aftan á hann.... náði rétt svo að sveifla þessari þungu Dodge-jarðýtu fram úr honum til að forðast aftan á keyrslu... og stoppaði svo 100m síðar. Þvilíkur hlunkur og eins gott að það var enginn bíll að koma á móti.
Ég skalf svo á beinunum eftir að hafa stoppað bílinn að ég stóð varla í fæturnar... adrenalínflæði á háustigi. Sótti svo Bríönnu allt of sein og allur leikskólinn tómur nema hún og ein fóstran...æ æ æ.
Guðbjörg, ég held þú hafir smitað mig. Er slöpp!
Klukkan er 11:06 og Viktoría hefur sagt sitt.
Oh, helgin strax búin og ég rétt að byrja að njóta hennar. Reyndar bara einn frídagur í þetta sinn... í dag sunnudag. Í dag var lítið hægt að gera annað en að kúra með teppi og lesa góðan reifara... frekar nastí veður.
Við fengum óvenjulegan gest. Hingað kom skoppandi bárujárnsplata inn í garðinn okkar. Hún er a.m.k. ekki frá mér, því þakið mitt er grænt og platan er gráblá. Sé nú enga plötu vanta á nágrannahúsin. Guð einn veit hvaðan hún kom. Ég auglýsti eftir eiganda á Strandir.is svo vonandi kemur einhver að vitja hennar svo hún getur farið aftur til bræðra sinna.
Já og svo er fullt tungl í dag. ÚÚÚúú..... eins gott að halda sig inni, borða mikið af hvítlauk og halda á kross sér til varnar.
Klukkan er 21:01 og Viktoría hefur sagt sitt.
Þá er litli frændi fæddur (sem allir héldu að væri stelpa). Ása Lind og Friðrik áttu 55cm langan og 17 merkur dreng klukkan 7 í gærkvöldi. Til hamingju með það!
Amma Ása er búin að vera slöpp eftir hnéaðgerðina á þriðjudaginn, en hún er nú svo mikið hörkutól að hún hlýtur að fara að braggast.
Við erum búin að úrbeina hálft stykki naut, ó guð hvað það er drep-leiðinlegt. Reyndar úrbeinuðum við það og prentuðum svo út leiðbeiningar um úrbeinun af netinu..EFTIR Á. Sáum þá að við hefðum gert þetta allt vitlaust. En hey, kjöt er kjöt og ég veit að þetta verður allt étið.
Nú er orðið langt síðan að ég hef séð hana Æsu mína (þessa nafnlausu). Er búin að hringja of til að reyna að komast í heimsókn, en enginn heima. Hún verður orðin risa stór þegar ég sé hana næst.
Klukkan er 09:01 og Viktoría hefur sagt sitt.